Fjármálastjóri, tæknistjóri, rekstrarstjóri og áhættustjóri spyrja ólíkra spurninga. Í Operient finna þau svörin á einum stað.
Þrjátíu hugmyndir, eitt framkvæmdateymi og stjórn sem vill sjá árangur.
Hvert tækifæri er metið eftir því hvort gervigreind hentar, hvaða eftirlit þarf og hvort reksturinn er tilbúinn. Þú sérð ráðlagða stöðu og hvað þyrfti til að hún breyttist.
Röðun tækifæra með forsendum sem þú getur rökstutt ef hún er dregin í efa, og skráða ástæðu ef stöðva þarf tilraunaverkefni sem skilar ekki árangri.
Á hvaða forsendum var þetta samþykkt, og hvað myndi sýna að það væri rangt?
Ávinningur í vinnustundum og krónum, þar sem hver forsenda er nefnd og sagt hversu örugg hún er. Þegar fleiri ferlasvið hafa verið metin sérðu sviðsmyndir bornar saman hlið við hlið.
Stjórnendaskýrsla með tillögunni, áætluðum ávinningi, forsendunum og þeim skilyrðum sem þarf að uppfylla áður en haldið er áfram.
Hvað getur farið úrskeiðis, hvaða stýringar þarf og ræður högunin okkar við þetta?
Eftirlitsþörf er skoðuð sérstaklega, svo mikill ávinningur geti aldrei falið hana. Þú sérð líka hvort gögn, kerfi og stýringar eru tilbúin. Hverju „nei“ fylgir skriflegur rökstuðningur.
Ákvörðunarskjal sem sýnir hvað var vitað, á hverju var byggt og hvað var ákveðið, ásamt útgáfu aðferðarinnar og getuyfirlitsins sem notuð var.
Operient styður stjórnarhætti í fjárfestingum í gervigreind. Það kemur ekki í stað áhættuflokkunar samkvæmt gervigreindarreglugerð ESB eða mats á regluvörslu.
Í samtalinu förum við yfir hvaða ferlasvið hentar best og hverjir þurfa að koma að matinu.