Um okkur

Hvernig Operient varð til.

Saman höfum við reynslu af sölu, þjónustu, rekstri fyrirtækjakerfa, högun og stjórnarháttum.

Aftur og aftur sáum við sama vandann: gervigreind getur unnið verkin, en hún segir stjórnendum ekki í hvaða verkefnum er vit að fjárfesta, í hvaða röð eða á hvaða forsendum.

Þess vegna þróuðum við Operient: hugbúnað sem raðar tækifærum á sama grunni, skráir rökin að baki hverri tillögu og er uppfærður þegar aðstæður breytast.

Teymi Operient

Fólkið á bak við Operient.

Jóhanna Ríkarðsdóttir Færseth
Meðstofnandi og framkvæmdastjóri

Jóhanna Ríkarðsdóttir Færseth

Hannaði og þróaði Operient frá grunni og vinnur fyrsta ferlasviðið með viðskiptavinum. Hátt í tuttugu ár í fjármála- og tæknigeiranum, meðal annars með ábyrgð á rekstri og þróun stórra fyrirtækjakerfa. Sérþekking á stjórnun upplýsingaöryggis og eftirliti (ISO 27001).

Stjórnarhættir Upplýsingaöryggi Stjórnun fjárfestinga í gervigreind
Skoða prófíl á LinkedIn →
Óðinn Thor Harðarson
Meðstofnandi og tæknistjóri

Óðinn Thor Harðarson

Ber ábyrgð á tæknilegri högun Operient og heldur utan um getuyfirlitið, svo tillögurnar endurspegli það sem tæknin ræður við í raun. Uppfærir yfirlitið þegar tæknin breytist. Yfir tíu ár í upplýsingatækni, þar af sex í forystu fyrir högun fyrirtækjakerfa og gagna.

Kerfishögun Gagnahögun Getuyfirlit
Skoða prófíl á LinkedIn →

Operient ehf. er í eigu stofnenda og með aðsetur í Garðabæ.

Hafið samband

Byrjið á einu ferlasviði.

Teymi Operient vinnur fyrsta matið með ykkur út frá ykkar eigin gögnum. Þið fáið skráða tillögu með væntum ávinningi, forsendum og skilyrðum fyrir framhaldi.

Operient

Óháð mat á fjárfestingum í gervigreind.

Operient ehf.

Kt.: 430222-1710

Hafðu samband

info@operient.is
+354 649 80 44