Hugbúnaður fyrir mat á fjárfestingum í gervigreind

Hvaða fjárfestingar í gervigreind, í hvaða röð og á hvaða forsendum?

Operient er þróað á Íslandi og sýnir hvar gervigreind er þess virði að fjármagna, hvað á að koma fyrst og hvaða eftirlit hver fjárfesting þarf. Þið fáið rökstudda tillögu sem byggir á gögnum úr ykkar eigin rekstri.

Óháð birgjum Við mælum með því sem hentar ykkar rekstri, ekki tilteknu tóli eða birgja.
Af hverju Operient

Forsendurnar breytast hraðar
en áætlanirnar.

Í dag
Fjárfestingar

Flest fyrirtæki eru byrjuð að nota gervigreind í einhverjum mæli. Mörg geta ekki sýnt hvað hún skilar. Tíma og fjármagni er eytt í tilraunir sem margar hverjar komast aldrei í rekstur.

Stöðugt
Tæknin

Ný tól, líkön og verð koma fram í hverjum mánuði. Það sem borgaði sig ekki í fyrra getur gert það í dag, og öfugt.

Nú og 2027
Reglur

Fjármálafyrirtæki þurfa nú þegar að rökstyðja val á tækni (DORA). Frá desember 2027 bætir gervigreindarreglugerð ESB við kröfum um áhættumikil kerfi, og Ísland fylgir í gegnum EES.

Heimildir: Reglugerð (ESB) 2022/2554 (DORA); reglugerð (ESB) 2024/1689, með breytingum samkvæmt reglugerð (ESB) 2026/1744.

Flestar ákvarðanir um fjárfestingar í gervigreind eru enn teknar í glærukynningum, á fundum og í töflureiknum. Erfitt er að bera þær saman, erfitt að verja þær, og þær úreldast á nokkrum mánuðum. Operient heldur matinu, rökunum og eftirlitinu á einum stað og uppfærir það þegar forsendur breytast.

Sýnishorn úr Operient

Ákvörðunin er rekjanleg.

Fyrir hvert tækifæri sjáið þið væntanlegt virði, forgang, forsendur og kröfur um stjórnun og eftirlit. Þannig er ljóst ekki aðeins hvað á að gera, heldur hvers vegna.

1 / 4

Fyrst er skráð hvernig verkið er unnið í dag.

Núverandi staða í dæmasafninu: 10 ferlasvið, 6.521 vinnustund á mánuði, 92% gagnaheilleiki.
Núverandi staða

Núverandi staða hjá dæmafyrirtækinu: 10 ferlasvið, 6.521 vinnustundir á mánuði, 92% heildstæð gögn.

Sýnidæmi með skálduðum gögnum. Fyrirtækið er ekki viðskiptavinur Operient.

Það sem Operient skilar

Traustur grunnur að fjárfestingarákvörðun.

Operient sameinar gögn, mat og forsendur á einn stað. Þið fáið rökstudda tillögu um hvað ætti að fara í forgang, hvaða virði líklegt er að náist og hvaða kröfur um stjórnun og eftirlit þarf að uppfylla áður en fjárfest er. Ákvörðunin er alltaf ykkar.

Hentar gervigreind?

Hvar gervigreind getur skapað virði, miðað við kröfur rekstrarins og það sem tæknin ræður við í dag.

Virði og forsendur

Væntur ávinningur, kostnaður, óvissa og þær forsendur sem niðurstaðan byggir á.

Stjórnun og eftirlit

Hvaða stýringar, ábyrgð og eftirlit þurfa að vera til staðar áður en haldið er áfram.

Tillaga og næsta yfirferð

Tillagan, rökin fyrir henni og hvenær rétt er að skoða ákvörðunina aftur.

Aðferðin

Frá ykkar gögnum að rökstuddri tillögu.

Operient tengir saman tvennt: gögn ykkar um verkferlin og getuyfirlit Operient yfir það sem gervigreindarlausnir á markaði ráða við í dag. Yfirlitið er uppfært þegar tæknin breytist og hver niðurstaða er skráð með þeirri útgáfu sem hún byggði á. Þið getið keyrt matið aftur hvenær sem gögn, forsendur eða tæknin breytast.

Sjá hvernig það virkar →

Hlutverk Operient

Operient kemur á undan innleiðingunni.

Fyrirtæki hafa gögnin, tólin og samstarfsaðilana til að innleiða gervigreind. Operient hjálpar ykkur að velja hvað á að innleiða, í hvaða röð og á hvaða forsendum.

  1. 01

    Gögn um reksturinn

    Þið leggið fram gögn um hvernig vinnan fer fram í dag: magn, vinnslutíma og frávik.

  2. 02

    Operient: tillaga um fjárfestingu

    Operient metur gögnin á móti getuyfirliti um það sem gervigreindarlausnir ráða við í dag. Tillagan sýnir hvað ætti að koma fyrst, hvaða ávinnings má vænta og hvaða skilyrði þarf að uppfylla.

  3. 03

    Innleiðing gervigreindar

    Þið eða samstarfsaðilar ykkar innleiðið nýju gervigreindarlausnina og tengið hana kerfunum. Operient kemur ekki að innleiðingunni.

  4. 04

    Rekstur og eftirlit

    Þið keyrið lausnina og vaktið hana. Þegar forsendur eða tæknin breytast fer hún aftur í mat í Operient.

Operient kemur ekki í stað ferlagreiningar, sjálfvirknikerfa eða stjórnunar í rekstri. Það ákvarðar hvað á erindi inn í þessi lög, og hvers vegna.

Hvað Operient er, og hvað það er ekki
Það er
Skrefið á undan innleiðingunni

Operient kemur á milli spurningarinnar „Hvar eigum við að nota gervigreind?“ og tólanna sem byggja lausnirnar og reka þær.

Byggt á gögnum

Það vinnur út frá því sem þú veist nú þegar um hvernig ferlarnir ganga í dag.

Samræmt

Sömu gögn gefa sömu niðurstöðu, í dag, á næsta ári og frammi fyrir eftirlitsaðila.

Metið upp á nýtt, ekki endurskrifað

Þegar geta breytist er ákvörðunin metin upp á nýtt og sú fyrri varðveitt í skránni.

Það er ekki
Sjálfvirknikerfi

Við smíðum hvorki gervigreindarfulltrúa, þjarka né sjálfvirkni. Við ákveðum hvað er þess virði að smíða.

Ferlanámutól

Við nýtum gögnin um ferlana þína sem inntak í stað þess að kortleggja þau.

Keppinautur kerfanna sem þú rekur

Við erum framar í keðjunni og segjum hvað á að gera við þau, og í hvaða röð.

Ráðgjafarskýrsla

Skýrsla úreldist frá þeim degi sem hún berst. Matið er uppfært miðað við stöðuna eins og hún er núna.

Fyrir hverja

Stjórnendur og teymi sem taka ákvarðanir um gervigreind.

Ferlasviðin sem stigakerfið er hannað fyrir

Fjármálarekstur

  • Úrvinnsla frávika í reikningum
  • Viðskiptaskuldir og reikningar birgja
  • Endurgreiðsla útlagðs kostnaðar
  • Lögbundin skýrslugjöf og skattskil

Þjónusta við viðskiptavini

  • Flokkun þjónustubeiðna
  • Beining og stigmögnun mála
  • Móttaka nýrra viðskiptavina
  • Endurgreiðslur og meðferð kvartana

Upplýsingatækniþjónusta (ITSM)

  • Flokkun og beining atvika
  • Breytingaráð (CAB)
  • Afstemming CMDB
  • Úthlutun aðgangs

Mannauðsþjónusta

  • Móttaka og starfslok starfsfólks
  • Málastjórnun mannauðs
  • Fyrirspurnir um reglur og stefnur
  • Umsýsla starfskjara og hlunninda

Aðfangakeðja og pantanir

  • Skráning nýrra birgja
  • Frávik í innkaupapöntunum
  • Úrvinnsla frávika í kælikeðju

Bakvinnsla og skjalavinnsla

  • Yfirferð samninga
  • Úrvinnsla tjónakrafna og réttinda
  • Innsláttur og afstemming gagna
  • Skráning og flokkun skjala
Helstu kostir

Niðurstaða sem stenst skoðun.

Sami mælikvarði fyrir öll tækifæri

Öll tækifæri fá einkunn eftir sömu viðmiðum og sama getuyfirliti, svo forgangsröðunin byggir á gögnum en ekki kynningum birgja eða þrýstingi innanhúss. Einkunnirnar eru reiknaðar, ekki búnar til af mállíkani.

Rekjanlegt fyrir stjórn og eftirlitsaðila

Gögnin, forsendurnar og útgáfa getuyfirlitsins eru skráð með hverri tillögu. Þegar stjórn, endurskoðendur eða eftirlitsaðili spyrja hvernig ákvörðun var tekin liggur svarið fyrir.

Þekkingin verður eftir hjá ykkur

Eftir fyrsta matið tekur ykkar fólk við: það bætir við ferlasviðum og uppfærir fyrri niðurstöður sjálft í Operient. Aðferðin og sagan á bak við hverja ákvörðun haldast innan fyrirtækisins.

Teymi Operient

Við förum með ykkur í gegnum fyrsta ferlasviðið.

Þannig lærir ykkar fólk aðferðina á eigin gögnum og getur haldið áfram sjálft í Operient.

Jóhanna Ríkarðsdóttir Færseth
Meðstofnandi og framkvæmdastjóri

Jóhanna Ríkarðsdóttir Færseth

Hannaði og þróaði Operient frá grunni og vinnur fyrsta ferlasviðið með viðskiptavinum. Hátt í tuttugu ár í fjármála- og tæknigeiranum, meðal annars með ábyrgð á rekstri og þróun stórra fyrirtækjakerfa. Sérþekking á stjórnun upplýsingaöryggis og eftirliti (ISO 27001).

Óðinn Thor Harðarson
Meðstofnandi og tæknistjóri

Óðinn Thor Harðarson

Ber ábyrgð á tæknilegri högun Operient og heldur utan um getuyfirlitið, svo tillögurnar endurspegli það sem tæknin ræður við í raun. Uppfærir yfirlitið þegar tæknin breytist. Yfir tíu ár í upplýsingatækni, þar af sex í forystu fyrir högun fyrirtækjakerfa og gagna.

Meira um okkur →

Spurningar sem skipta máli

Algengar spurningar

Svör við því sem við erum oftast spurð um.

Ef spurningin ykkar er ekki hér, hafið samband.
Er þetta ekki bara töflureiknir?

Nei. Töflureiknir geymir tölur, ekki aðferð. Hver sá sem fyllir hann út gefur einkunn á sinn hátt, formúlur brotna þegar línum er bætt við og enginn veit hvaða útgáfa er sú rétta. Hann veit ekkert um hvað gervigreind ræður við í dag, og kröfur um stjórnun og eftirlit eru aðeins með ef einhver man eftir þeim. Operient gefur öllum tækifærum einkunn eftir sömu reglum og sama getuyfirliti og skráir hverja niðurstöðu með forsendum sínum. Eftir átján mánuði getið þið sýnt hvað þið vissuð, hverju þið gerðuð ráð fyrir og hvað gervigreind réð við daginn sem ákvörðunin var tekin. Það getur töflureiknir ekki.

Hvernig er Operient frábrugðið ráðgjafarverkefni?

Ráðgjafarverkefni skilar skýrslu sem lýsir stöðunni daginn sem hún var skrifuð. Þegar tæknin, reglurnar eða forsendurnar breytast, sem gerist oft á nokkurra mánaða fresti, þarf nýtt verkefni. Rökin á bak við tillögurnar fara gjarnan með ráðgjöfunum þegar verkefninu lýkur. Í Operient eru niðurstöðurnar áfram í notkun: hvert tækifæri fær einkunn eftir sömu viðmiðum, hver ákvörðun er skráð með rökstuðningi og teymið ykkar uppfærir hana sjálft. Ráðgjafar geta líka unnið með ykkur í Operient, og þá verður niðurstaðan eftir hjá ykkur.

Operient selur hvorki gervigreindarlausnir né innleiðingu. Þegar kemur að innleiðingu byrjar ykkar eigið teymi eða samstarfsaðilinn sem þið veljið á skýrri verklýsingu.

Við erum þegar byrjuð að innleiða gervigreind. Er of seint að nota Operient?

Nei. Flest fyrirtæki hafa þegar innleitt gervigreind að einhverju marki. Verkefni sem eru þegar í gangi eru metin eins og önnur: stundum staðfestir matið ákvörðunina og stundum gefur það skráða ástæðu til að hætta. Betra er að hætta með rökum en að láta verkefni fjara út.

Hvað telst vera eitt ferlasvið?

Ferlasvið er afmarkað vinnusvið í eigu einnar einingar, t.d. reikningavinnsla, þjónustubeiðnir eða samningastjórnun. Það inniheldur yfirleitt nokkur verkferli, t.d. skráningu reikninga, úrvinnslu frávika og fyrirspurnir birgja. Hvert verkferli er metið sem sérstakt tækifæri. Þið þurfið ekki að hafa niðurbrotið tilbúið: við gerum það með ykkur á fyrsta fundinum.

Þurfið þið aðgang að kerfum okkar eða gögnum?

Nei. Þið sendið okkur útdrátt, til dæmis úr ERP-kerfi eða þjónustuborði, með magni, afgreiðslutíma og frávikum. Ekkert er sett upp hjá ykkur og engar persónuupplýsingar eru nauðsynlegar. Bein tenging við kerfin ykkar verður valkostur síðar.

Hvar eru gögnin okkar og hvað gerist þegar gervigreind breytist?

Við staðfestum skriflega hvar gögnin eru hýst og unnin áður en þið sendið nokkuð. Þegar geta gervigreindar breytist uppfærum við matið í nýrri útgáfu, en eldri ákvarðanir halda þeirri útgáfu sem þær byggðu á. Ekkert breytist án þess að þið sjáið það.

Mælið þið með birgjum eða innleiðingaraðilum?

Nei. Operient leggur til hvaða tækifæri eigi að fara í forgang og á hvaða forsendum. Hver sér um innleiðinguna er ákvörðun viðskiptavinarins. Stofnendur Operient eru einnig meðeigendur í ráðgjafarfyrirtækinu Kritavi, en Operient mælir aldrei með tilteknum aðila og allar niðurstöður byggja á sömu aðferð, óháð því hver tekur verkið að sér.

Fyrsta matið

Rökstudd tillaga á fáeinum klukkustundum.

Veldu eitt ferlasvið. Við vinnum matið með ykkur og stjórnin fær skýran grunn til að taka afstöðu.

950.000 kr.

Fast verð án VSK · Allt innifalið · Stofnverð til 31. mars 2027
Engin áskrift eða skuldbinding um framhald

  • UmfangEitt ferlasvið að eigin vali.
  • Þú færð
    • Skýra ráðleggingu um hvort eigi að fjárfesta, með rökunum að baki.
    • Stjórnendaskýrslu sem er tilbúin fyrir stjórnarfund.
    • Aðgangur að Operient-kerfinu í 12 mánuði, með endurmati.
  • Tíminn þinn2–3 klukkustundir fyrir upphafsmat og kynningu.
  • Þú leggur tilGögn sem þú átt nú þegar. Engin kerfistenging nauðsynleg og engar persónuupplýsingar. Beinar kerfistengingar eru mögulegar ef þú samþykkir.
Operient

Óháð mat á fjárfestingum í gervigreind.

Operient ehf.

Kt.: 430222-1710

Hafðu samband

info@operient.is
+354 649 80 44