Hugbúnaður fyrir mat á fjárfestingum í gervigreind

Hvaða fjárfestingar í gervigreind, í hvaða röð og á hvaða forsendum?

Operient er þróað á Íslandi og sýnir hvar gervigreind er þess virði að fjármagna, hvað á að koma fyrst og hvaða eftirlit hver fjárfesting þarf. Þið fáið rökstudda tillögu sem byggir á gögnum úr ykkar eigin rekstri.

Óháð birgjum·Við mælum með því sem hentar ykkar rekstri, óháð tólum og birgjum.
2–3 klukkustundir fyrir fyrsta mat í kerfinu
Af hverju Operient

Forsendurnar breytast hraðar
en áætlanirnar

Í dag
Fjárfestingar

Flest fyrirtæki eru byrjuð að nota gervigreind í einhverjum mæli. Mörg geta ekki sýnt hvað hún skilar. Tíma og fjármagni er eytt í tilraunir sem margar hverjar komast aldrei í rekstur.

Stöðugt
Tæknin

Ný tól, líkön og verð koma fram í hverjum mánuði. Það sem borgaði sig ekki í fyrra getur gert það í dag, og öfugt.

Nú og 2027
Reglur

Fjármálafyrirtæki þurfa nú þegar að stýra og skjalfesta áhættu vegna upplýsingatækni og þjónustuaðila, líka gervigreindar sem þau kaupa (DORA). Frá desember 2027 bætir gervigreindarreglugerð ESB við kröfum um áhættumikil kerfi. Gert er ráð fyrir að Ísland fylgi í gegnum EES.

Heimildir: Reglugerð (ESB) 2022/2554 (DORA); reglugerð (ESB) 2024/1689, með breytingum samkvæmt reglugerð (ESB) 2026/1744.

Flestar ákvarðanir um fjárfestingar í gervigreind eru enn teknar í glærukynningum, á fundum og í töflureiknum. Erfitt er að bera þær saman, erfitt að verja þær, og þær úreldast á nokkrum mánuðum. Operient heldur matinu, rökunum og eftirlitinu á einum stað og uppfærir það allt þegar forsendur breytast.

Sýnishorn úr Operient

Ákvörðunin er rekjanleg

Fyrir hvert tækifæri sýnir skýrslan vænt virði, forgang, forsendur og kröfur um stjórnarhætti. Þannig er ljóst ekki aðeins hvað á að gera, heldur hvers vegna.

1 / 4

Fyrst er skráð hvernig verkið er unnið í dag.

Núverandi staða í dæmasafninu: 10 ferlasvið, 6.521 vinnustund á mánuði, 92% gagnaheilleiki.
Núverandi staða

Núverandi staða hjá dæmafyrirtækinu: 10 ferlasvið, 6.521 vinnustundir á mánuði, 92% heildstæð gögn.

Sýnidæmi með skálduðum gögnum. Fyrirtækið er ekki viðskiptavinur Operient.

Það sem Operient skilar

Traustur grunnur að fjárfestingarákvörðun

Operient sameinar gögn, mat og forsendur á einn stað. Þið fáið rökstudda tillögu um hvað ætti að fara í forgang, hvaða virði líklegt er að náist og hvaða kröfur um stjórnun og eftirlit þarf að uppfylla áður en fjárfest er. Ákvörðunin er alltaf ykkar.

Hentar gervigreind?

Hvar gervigreind getur skapað virði, miðað við kröfur rekstrarins og það sem tæknin ræður við í dag.

Virði og forsendur

Væntur ávinningur, kostnaður, óvissa og þær forsendur sem niðurstaðan byggir á.

Stjórnun og eftirlit

Hvaða stýringar, ábyrgð og eftirlit þurfa að vera til staðar áður en haldið er áfram.

Tillaga og næsta yfirferð

Tillagan, rökin fyrir henni og hvenær rétt er að skoða ákvörðunina aftur.

Aðferðin

Frá ykkar gögnum að rökstuddri tillögu

Operient tengir saman tvennt: gögn ykkar um verkferlin og getuyfirlit Operient yfir það sem gervigreindarlausnir á markaði ráða við í dag. Yfirlitið er uppfært þegar tæknin breytist og hver niðurstaða er skráð með þeirri útgáfu sem hún byggði á. Matið er uppfært þegar gögnin ykkar, forsendur eða tæknin breytast.

Sjá hvernig það virkar →

Hlutverk Operient

Operient kemur á undan innleiðingunni

Fyrirtæki hafa gögnin, tólin og samstarfsaðilana til að innleiða gervigreind. Operient hjálpar ykkur að velja hvað á að innleiða, í hvaða röð og á hvaða forsendum.

  1. 01

    Gögn um reksturinn

    Þið leggið fram gögn um hvernig vinnan fer fram í dag: magn, vinnslutíma og frávik.

  2. 02

    Operient: tillaga um fjárfestingu

    Operient metur gögnin á móti getuyfirliti um það sem gervigreindarlausnir ráða við í dag. Tillagan sýnir hvað ætti að koma fyrst, hvaða ávinnings má vænta og hvaða skilyrði þarf að uppfylla.

  3. 03

    Innleiðing gervigreindar

    Þið eða samstarfsaðilar ykkar innleiðið nýju gervigreindarlausnina og tengið hana kerfunum. Operient kemur ekki að innleiðingunni.

  4. 04

    Rekstur og eftirlit

    Þið keyrið lausnina og vaktið hana. Þegar forsendur eða tæknin breytast fer hún aftur í mat í Operient.

Operient kemur ekki í stað ferlagreiningar, sjálfvirknikerfa eða vöktunartóla fyrir gervigreind. Það sýnir hvaða tækifæri eiga erindi þangað, og hvers vegna.

Hvað Operient er, og hvað það er ekki
Það er
Skrefið á undan innleiðingunni

Operient kemur á milli spurningarinnar „Hvar eigum við að nota gervigreind?“ og tólanna sem byggja lausnirnar og reka þær.

Byggt á gögnum

Það vinnur út frá því sem þið vitið nú þegar um hvernig ferlarnir ganga í dag.

Samræmt

Sömu gögn gefa sömu niðurstöðu, í dag, á næsta ári og frammi fyrir eftirlitsaðila.

Metið upp á nýtt, ekki endurskrifað

Þegar geta breytist er ákvörðunin metin upp á nýtt og sú fyrri varðveitt í skránni.

Það er ekki
Sjálfvirknikerfi

Við smíðum hvorki gervigreindarfulltrúa, þjarka né sjálfvirkni. Við sýnum hvað er þess virði að smíða.

Ferlanámutól

Við nýtum gögnin um ferlana ykkar sem inntak í stað þess að kortleggja þau.

Keppinautur kerfanna sem þið rekið

Við erum framar í keðjunni og segjum hvað á að gera við þau, og í hvaða röð.

Ráðgjafarskýrsla

Skýrsla úreldist frá þeim degi sem hún berst. Matið er uppfært miðað við stöðuna eins og hún er núna.

Fyrir hverja

Stjórnendur og teymi sem taka ákvarðanir um gervigreind

Ferlasviðin sem stigakerfið er hannað fyrir

Fjármálarekstur

  • Úrvinnsla frávika í reikningum
  • Viðskiptaskuldir og reikningar birgja
  • Endurgreiðsla útlagðs kostnaðar
  • Lögbundin skýrslugjöf og skattskil

Þjónusta við viðskiptavini

  • Flokkun þjónustubeiðna
  • Beining og stigmögnun mála
  • Móttaka nýrra viðskiptavina
  • Endurgreiðslur og meðferð kvartana

Upplýsingatækniþjónusta (ITSM)

  • Flokkun og beining atvika
  • Breytingaráð (CAB)
  • Afstemming CMDB
  • Úthlutun aðgangs

Mannauðsþjónusta

  • Móttaka og starfslok starfsfólks
  • Málastjórnun mannauðs
  • Fyrirspurnir um reglur og stefnur
  • Umsýsla starfskjara og hlunninda

Aðfangakeðja og pantanir

  • Skráning nýrra birgja
  • Frávik í innkaupapöntunum
  • Úrvinnsla frávika í kælikeðju

Bakvinnsla og skjalavinnsla

  • Yfirferð samninga
  • Úrvinnsla tjónakrafna og réttinda
  • Innsláttur og afstemming gagna
  • Skráning og flokkun skjala
Helstu kostir

Niðurstaða sem stenst skoðun

Sami mælikvarði fyrir öll tækifæri

Öll tækifæri fá einkunn eftir sömu viðmiðum og sama getuyfirliti, svo forgangsröðunin byggir á gögnum en ekki kynningum birgja eða þrýstingi innanhúss. Einkunnirnar eru reiknaðar, ekki búnar til af mállíkani.

Rekjanlegt við úttektir og eftirlit

Gögnin, forsendurnar og útgáfa getuyfirlitsins eru skráð með hverri tillögu. Þegar stjórn, úttektaraðilar eða eftirlitsaðilar spyrja hvernig ákvörðun var tekin liggur svarið fyrir.

Þið eigið ákvörðunarskjalið

Hverju mati og endurmati fylgir allt ákvörðunarskjalið: gögnin, forsendurnar og útgáfa getuyfirlitsins sem var notuð. Skjalið er ykkar, svo sagan á bak við hverja ákvörðun verður eftir hjá ykkur, ekki hjá ráðgjafa.

Teymi Operient

Stofnendurnir stýra fyrsta matinu

Við framkvæmum fyrsta matið með teyminu ykkar, svo það lærir aðferðina á eigin gögnum. Síðan heldur teymið áfram í Operient.

Jóhanna Ríkarðsdóttir Færseth
Meðstofnandi og framkvæmdastjóri

Jóhanna Ríkarðsdóttir Færseth

Ber ábyrgð á aðferðafræði Operient og vinnur fyrsta ferlasviðið með viðskiptavinum. Aðferðin er skráð og útgáfustýrð í vörunni sjálfri. Hátt í tuttugu ár í fjármála- og tæknigeiranum, meðal annars með ábyrgð á rekstri og þróun stórra fyrirtækjakerfa. Sérþekking á stjórnun upplýsingaöryggis og eftirliti (ISO 27001).

Óðinn Thor Harðarson
Meðstofnandi og tæknistjóri

Óðinn Thor Harðarson

Byggir vöruna og ber ábyrgð á tæknilegri högun, öryggi og hýsingu Operient. Heldur utan um getuyfirlitið svo tillögurnar endurspegli það sem tæknin ræður við í raun. Yfir tíu ár í upplýsingatækni, þar af sex í forystu fyrir högun fyrirtækjakerfa og gagna.

Fyrsta matið

Ákvörðun um gervigreind sem þið getið varið, fyrir 2–3 klukkustundir af ykkar tíma

Veljið eitt ferlasvið. Við metum hvaða verkferlar þess réttlæta fjárfestingu í gervigreind, í hvaða röð og hvaða stjórnarhátta hver þeirra krefst.

  • UmfangEitt ferlasvið að eigin vali.
  • Þið fáið
    • Röðun verkferla eftir hæfi fyrir gervigreind, virði og kröfum um stjórnarhætti, með rökstuðningi.
    • Stjórnendaskýrslu sem hægt er að byggja ákvörðun á.
    • Aðgang að Operient í 12 mánuði til að endurmeta þetta ferlasvið þegar geta gervigreindar, kostnaður eða áherslur ykkar breytast. Önnur ferlasvið eru metin sérstaklega.
  • Tíminn ykkar2–3 klukkustundir, í tveimur vinnustofum.
  • Þið leggið tilSamantektartölur sem þið eigið nú þegar, til dæmis fjölda mála og meðhöndlunartíma úr skýrslum eða Excel. Engar persónuupplýsingar, engin kerfistenging og enginn aðgangur að ykkar kerfum. Unnið undir trúnaðarsamningi.
Spurningar sem skipta máli

Algengar spurningar

Svör við því sem við erum oftast spurð um.

Ef spurningin ykkar er ekki hér, hafið samband.
Er þetta ekki bara töflureiknir?

Nei. Töflureiknir geymir tölur, ekki aðferð. Hver sá sem fyllir hann út gefur einkunn á sinn hátt, formúlur brotna þegar línum er bætt við og enginn veit hvaða útgáfa er sú rétta. Hann veit ekkert um hvað gervigreind ræður við í dag, og kröfur um stjórnun og eftirlit eru aðeins með ef einhver man eftir þeim. Operient gefur öllum tækifærum einkunn eftir sömu reglum og sama getuyfirliti og skráir hverja niðurstöðu með forsendum sínum. Eftir átján mánuði getið þið sýnt hvað þið vissuð, hverju þið gerðuð ráð fyrir og hvað gervigreind réð við daginn sem ákvörðunin var tekin. Það getur töflureiknir ekki.

Hvernig er Operient frábrugðið ráðgjafarverkefni?

Ráðgjafarverkefni skilar skýrslu sem lýsir stöðunni daginn sem hún var skrifuð. Þegar tæknin, reglurnar eða forsendurnar breytast, sem gerist oft á nokkurra mánaða fresti, þarf nýtt verkefni. Rökin á bak við tillögurnar fara gjarnan með ráðgjöfunum þegar verkefninu lýkur. Í Operient eru niðurstöðurnar áfram í notkun: hvert tækifæri fær einkunn eftir sömu viðmiðum, hver ákvörðun er skráð með rökstuðningi og teymið ykkar heldur henni við. Ákvörðunarskjalið er ykkar eign, hvort sem matið kemur beint frá okkur eða í gegnum samstarfsaðila.

Operient selur hvorki gervigreindarlausnir né innleiðingu. Þegar kemur að innleiðingu byrjar ykkar eigið teymi eða samstarfsaðilinn sem þið veljið á skýrri verklýsingu.

Við erum þegar byrjuð að innleiða gervigreind. Er of seint að nota Operient?

Nei. Flest fyrirtæki hafa þegar innleitt gervigreind að einhverju marki. Verkefni sem eru þegar í gangi eru metin eins og önnur: stundum staðfestir matið ákvörðunina og stundum gefur það skráða ástæðu til að hætta. Betra er að hætta með rökum en að láta verkefni fjara út.

Hvað telst vera eitt ferlasvið?

Ferlasvið er afmarkað vinnusvið í eigu einnar einingar, t.d. reikningavinnsla, þjónustubeiðnir eða samningastjórnun. Það inniheldur yfirleitt nokkur verkferli, t.d. skráningu reikninga, úrvinnslu frávika og fyrirspurnir birgja. Hvert verkferli er metið sem sérstakt tækifæri. Þið þurfið ekki að hafa niðurbrotið tilbúið: við gerum það með ykkur á fyrsta fundinum.

Þurfið þið aðgang að kerfum okkar eða gögnum?

Nei. Þið sendið okkur útdrátt, til dæmis úr ERP-kerfi eða þjónustuborði, með magni, afgreiðslutíma og frávikum. Ekkert er sett upp hjá ykkur og engar persónuupplýsingar eru nauðsynlegar.

Hvar eru gögnin okkar og hvað gerist þegar gervigreind breytist?

Við staðfestum skriflega hvar gögnin eru hýst og unnin áður en þið sendið nokkuð. Þegar geta gervigreindar breytist gefum við út nýja útgáfu getuyfirlitsins, en eldri ákvarðanir halda þeirri útgáfu sem þær byggðu á. Ekkert breytist án þess að þið sjáið það.

Mælið þið með birgjum eða innleiðingaraðilum?

Nei. Operient leggur til hvaða tækifæri eigi að fara í forgang og á hvaða forsendum. Hver sér um innleiðinguna er ákvörðun viðskiptavinarins. Stofnendur Operient eru einnig meðeigendur í ráðgjafarfyrirtækinu Kritavi, en Operient mælir aldrei með tilteknum aðila og allar niðurstöður byggja á sömu aðferð, óháð því hver tekur verkið að sér.

Operient

Óháð mat á fjárfestingum í gervigreind.

Operient ehf.

Kt. 430222-1710 · Garðabæ · info@operient.is